17. október

Nýtt útlit komið á síðuna mína :)

Yfir 200 nýjar myndir frá júní, júlí, ágúst og september komnar inn

Núna er hægt að kvitta við allar myndir

Kvittið endilega í gestabókina

Ég heiti Atli Jakob og fæddist laugardaginn 12. september 2009 á FSA. Ég var skírður 8. nóvember 2009 í Akureyrarkirkju. Við fæðingu var ég 4205 gr og 54 cm. 

 

Sætur í náttúrunni :)

Pabbi minn heitir Kristinn F. Jakobsson ('83) og er kokkur hjá Lostæti, mamma mín heitir Guðrún S. Þorsteinsdóttir ('83)  og vinnur á leikskólanum Tröllaborgum. Leikskólinn minn heitir Krógaból og deildin mín Hreiðrið :)

 

Fjölskyldumynd

 

 







Meyjan
23. Ágúst - 22. September
Hér er kominn einstaklingur sem vill hafa hlutina í
röð og reglu og er mjög íhaldssamur. Litla meyjan er að
öllu jöfnu auðveld í umgengni, samviskusöm, dugleg og hlýðin
en oft á tíðum alvörugefin.
Skynsemi meyjarinnar kemur yfirleitt fljótt í ljós og
ef kæruleysi er ríkjandi í kringum hana er ekki
ólíklegt að hún fari að siða fólk til í kringum
sig og hafa vit fyrir því.
Hún byrjar snemma að hjálpa til á heimilinu og er
oft mjög handlagin.
Hún er yfirleitt ekki mikið gefin fyrir að draga athyglina
að sér og lítil meyjubörn geta oft haft ofan af fyrir sér sjálf í
langan tíma. Foreldrar þurfa að draga fram hið jákvæða
því litlar meyjur hafa oft áhyggjur af því að hlutirnir
séu ekki nægilega vel gerðir.
Því þarf að hjálpa þeim að sjá bjartari hliðar
tilverunnar og læra að trúa á eigin getu. Ekki er verra að ýta undir skopskyn þeirra.